Nýtt undralyf

Ég sá í gær á Vísi .is að fundist hefur nýtt undralyf úr hvönn. Nánar tiltekið úr hratinu úr fræjunum. Nú er ég með þeim ósköpum fædd að verða alveg viðþolslaus ef ég frétti um nýtt lyf eða það sem menn halda að sé lyf að prófa þetta á sjálfri mér. Svo ég leitaði að Saga Medica á Akranesi þar sem lyfið ku hafa uppgötvast en fann ekki fyrirtækið í skránni. Þá var að leita í höfuðborg allra landsmanna, en ekki gat ég komið auga á það þar. Það sem mér þótti merkilegast var sú fullyrðing þeirra sem prófað hafa þetta nýja lyf er að þeir þykjast hafa orðið varir við mikla verkan þess á þunglyndi og aðra geðkvilla. Ekki svo að skilja að ég sé geðsjúklingur svo ég viti en ég þekki marga sem hefðu gott af að létta lundina svolítið. Svo nú spyr ég ykkur þarna úti. Hvar get ég komist í samband við Saga Medica????'

Sigrún


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Björgvinsdóttir

Höfundur

Sigrún Björgvinsdóttir
Sigrún Björgvinsdóttir
Bý á Egilsstöðum. Gamall kennari en nú skógarbóndi
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband